Showing posts with label kaup dagsins. Show all posts
Showing posts with label kaup dagsins. Show all posts

Friday, August 16, 2013

kaup dagsins!

Í gær fór ég með mömmu og keypti skólabækurnar mínar. Svo lá leið okkar í Kringluna þar sem ég kaupti mér skó í Gallerí 17 og plötu í Skífunni. Skórnir eru frá New Balance og ég er rosalega ánægður með þá. Platan er "Historie de Melody Nelson" eftir Serge Gainsbourg og Jane Birkin. Mig hefur langað í þessa plötu í dálítin tíma. 



Opnunarlagið "Melody" frá plötunni.


-Berjumst

Thursday, August 01, 2013

Kaup Verslunnarmannahelgarinnar!

Í gær þá fór ég og fjölskyldan til Akureyrar og erum þar núna. Við stoppuðum á mörgum stöðum á leiðinni og meðal annars keyptum tómata, agúrkur og jarðaber frá Kleppjárnsreykjum, sem voru mjög góðir. En í dag þá fór ég og fleiri niðrí bæ á bláukönnuna þar sem ég fékk mér swiss mocha og smákökur. eftir það þá fór ég inní Eymundsson og kaupti mér nýjustu plötu Hjaltalín, "Enter 4" og tvö tísku tímarit, bandaríska Vogue og þýska Vogue. Síðan var ferð okkar heitið í Húsgagnahöllinna. Þegar þar var komið inn þá tók á móti mér gul bolabíts stytta sem er held ég úr postúlín en ég varð bara að kaupa hann. Síðan, nokkrum klukkustundum síðar þá fór ég, mamma, pabbi og vinkona mömmu niður í miðbæ Akureyrar að hlusta á tónleika þar en ég fór bara með þeim til að fá mér swiss mocha bolla og sírónuköku. 





-Berjumst

Saturday, July 20, 2013

Kaup dagsins!


Í dag fór ég niður í bæ og keypti mér svolítið í Sævari Karli. Það sem ég keypti var peysa frá franska/japanska merkinu Kenzo. Mér finnst peysan æðisleg en hún er ein af dýrari flíkum sem ég á þannig að ég ætla að spara hana fyrir böll og aðra viðburði.




-Berjumst