Showing posts with label Marc Jacobs. Show all posts
Showing posts with label Marc Jacobs. Show all posts

Monday, June 17, 2013

17. júní fjör! + OOTD

Í dag þá fór ég með vinkonum mínum niður í bæ og það var gaman. Það fyrsta sem við gerðum eftir að við komum á Hlemm var að fara inní 10-11 og kaupa blöðrur en mitt "Mission" var að kaupa 2 coke lite svo að ég gæti fengið Limited Edition málmflösku sem er hönnuð af Marc Jacobs sem er núna "Creative director" Coca Cola Light, ég var líka í skýjunum þegar ég sá hversu margar voru til. Eftir þetta þá lá leið okkar að Skífunni því að útgáfudagur nýjustu plötu Sigur Rósar sem heitir Kveikur sem ég keypti. Svo fórum við upp Laugarveginn og hittum þar hittum við vinkonur þeirra. Eftir það fórum við að Arnarhól og hlustuðum á fagratóna og horfðum á nokkur dansatriði. Svo fórum við inná American Style þar sem við fengum okkur að borða þar. Eftir matinn fórum við svo að horfa á fleiri dansatriði. Síðan fórum við á Aðalsræti þar sem margt var um manninn. Við hittum þar fullt af fólki sem við þekktum. Síðan eftir það þá fórum við að sjá "Ojba rasta" sem var að spila hjá Arnarhól. Síðan eftir það þá fór ég heim, stoppaði við í Vínberinu til að kaupa mér hvítsúkkulaði með kornflexi og fleiru góðu dóti. Eftir það þá tók ég strætó heim.






Hópmynd

Tunglskynsnætur(byrjunin á ljóðinu)
"Við hafnarbakkann er bærinn fallinn í trans, 
þar birtast guðleg musteri í lágum hreysum. 
En uppi stíga norðurljós náttlangan dans 
í nakinni dýrð eftir himinsins vegaleysum."
-Tómas Guðmundson


Ojba rasta að koma sér fyrir

Kaup dagsins!


Outfitið

Polobolur - YSL
Peysa - Ralph Lauren
Jakki - Michael Kors
Buxur - Volcom
Skór - Dr. Martens



-Berjumst

Monday, April 22, 2013

Vor trend - bátaskór (boatshoes)

Þegar líða fer á vorið og þegar hlýnar í veðri þá verða bátaskór meira áberandi á götum borgarinnar og líka á snekkjum ríka og fallega fólksins.Svona skór eru fullkomnir fyrir vorið og sumarið.










-Berjumst


Wednesday, March 06, 2013

Louis Vuitton fall/winter 2013-2014

Það flottasta við sýninguna var setið/tískupallinn en fötin voru bara svona óspennandi, fyrir utan eina og eina flík en í heildina var þetta mjög óspennandi lína. Mikið um náttkjóla og náttföt. Ég ætlaðist meira af Marc Jacobs. Sorry.

     Drottning tískupallanna Kate Moss

        Nipple slip sýningarinnar






 Meistarinn Marc Jacobs í náttfötum.


-Berjumst

Friday, February 15, 2013

Marc Jacobs fall/winter 2013-2014

Skemmtilegt að byrja sýningar á því að sýna fötin fyrst hratt og svo sýna þau í alvöru. Framsetninginn var flott, stór gul sól, allt rautt (fyrst), tónlistin dálítið kirkjuleg og gengu allir í hring.











Ég vill að þið segið mér hvað ykkur finnst með því að skrifa það hér, því að ég á erfit með að mynda mér skoðun um sýninguna.

Og svo má ég ekki gleyma föstudagslaginu sem er ekki af verri endanum.
Beyoncé að syngja lagið "Run the world(Girls)" á Billboard verðlaunahátíðinni 2011.
-Berjumst