Það er alltaf jafn gaman að horfa á herferðir Burberry og þessi var engin undantekning. Í auglýsingunni eru elskendur, Sienna Miller og Tom Sturridge sem eru að sýna fötin og kyssast oft (auglýsingin heitir líka "Trench kiss"). Ef þið eruð líka að velta því fyrir ykkur hvað lagið heitir sem spilar undir heitir þá heitir það "Hold me" eftir Brit verðlaunahafan Tom Odell.
Burberry fall/winter sýninginn var í gær og mér finnst alltaf eins og Christopher Bailey komi mér alltaf á óvart með hverri sýningu sem hann sýnir. Kápurnar eru alltaf öðruvísi. Málmbelti, málmmynstur á jakka hér fyrir neðan(geðveikt!), gúmmí regnkápur og kjólar (Vá). Töskurnar voru fallegar. Núna getur maður látið setja nafn sitt á merkimiðan á rykfrakkan sinn, þeir eru líka "Made to order".