WOW (air) hvað ég er ekki búinn að gera neinar færslur í 23 dag og fyrir það afsaka ég bloggleysið...
En í gærmorgun fór ég á fyrirlesturinn DesignTalks í Hörpu með vinkonu minni, henni Ásu Bríet. Það var ógeðslega gaman á fyrirlestrinum en hann var frá 9:30-16:00 sem sagt mjög langur fyrirlestur en samt skemmtilegur fyrirlestur! Meðal mælenda var tískugoðið, Calvin Klein! Hann var mjög opinn, skemmtilegur og deildi með okkur öllum (þeim sem voru í salnum) ráðum hvernig á að komast langt í tísku og gef okkur heilræði.
Calvin Klein og Steinunn Sigurðardóttir
Um kvöldið fórum við aftur í Hörpu og sáum tísku sýningu hjá annars árs nemum í Listaháskólanum sem var rosalega flott. Síðan fórum við í Off-venue partý hjá Trendnet og sáum þar aðra tískusýningu.
Ég man reyndar ekki nöfnin á hönnuðunum en ef þið vitið það þá megiði endilega segja mér það og líka segja mér hvaða hönnuður á hvaða flíkur...
Outfit dagsins/kvöldsins
Jakki: Michael Kors
Peysa: Kenzo
Polobolur: Pre End
Buxur: Pre End
Trefill: Vík Prjónsdóttir
Skór: Dr. Martens
Poki: Trendnet gúddí bag
-Berjumst
No comments :
Post a Comment