Sunday, December 08, 2013

Alexander Wang fyrir Dr. Dre

Já þið lásuð rétt. Alexander Wang aðdáendur ættu að vera spenntir því að, eins og titill þessarar færslu segir til um þá er Wang búinn að hanna nýtt look á heyrnatólum og hátalaranna (Beats Pill) fyrir Dr. Dre. Þessi lína verður limited edition og kemur í verslanir Alexander Wang og Dr. Dre 16 desember næst komandi.

Heyrnatólin verða svört með mattri áferð og með fölleitu gull smáatriðum. Verðið á heyrnatólunum er 449 dollarar (sem er 53 þúsund krónur).

Síðan er hátalarinn (Beats Pill), hún er eins og venjulega  Beats Pill-an nema að hún er svört með mattri áferð, gull smáatriði og hún kemur í flottu leður hulstri. Og verðið á hátalaranum er 299 dollarar (sem er 35 þúsund krónur).

Síðast koma litlu heyrnatólin sem eru eins og heyrnatólin nema að allt er úr fölleita gullinu og snúran er svört. Verðið á þeim er 149 dollarar (sem er 17 þúsund krónur). Allar vörurnar koma í fallegu leður hulstri.

Næsta verkefni er að suða rosalega í foreldrum mínum um að gefa mér hátalaran í jólagjöf og vona að þau láti undan.

Þið getiðs séð meira hér!


-Berjumst

No comments :

Post a Comment