Friday, February 22, 2013

Samstarf Fossil og Karl Lagerfeld

Ég sá í gærkvöldi svolítið magnað. Karl Lagerfeld er að gera úr fyrir Fossil eins og titill þessarar bloggfærslu bendir til. Ég er búinn að sjá smá "first look" úr línu KL og mér finnst þau mjög flott. Frekar gæjaleg með smá konu twisti. Línan kemur út 28. febrúar á sjálfan afmælisdaginn minn. Úrin munu kosta á milli 150 dollara-19 þúsund kr.  og 530 dollara-67 þúsund kr. 


Þið getið svo tekið þátt í leik á þessari síðu. Það er til mikils að vinna því að í hverri viku þá fær heppin einstaklingur armbandsúr úr línu KL. Svo á hverjum degi fær heppin einstaklingur stóra handtösku frá línu Karls Lagerfelds. Og svo eru aðalviningurinn handtaska, sólgleraugu og þrjú armbandsúr frá Fossil.


-Berjumst


No comments :

Post a Comment